JURIS býður upp á sérhæfða lögmannsþjónustu með áherslu á lögfræði á sviði viðskipta og fjármála.
Lögmenn JURIS búa yfir sérþekkingu á einstökum sviðum lögfræðinnar og hafa aflað sér víðtækrar starfsreynslu á viðkomandi sviðum, m.a. með málflutningsstörfum og kennslu í háskólum landsins.
Í ársbyrjun 2011 sameinuðust JURIS – Almenna lögfræðistofan, lögmannsstofan Jónsson & Harðarson ehf. og Páll Ásgrímsson hdl. undir merkjum JURIS. Eftir þetta urðu eigendur JURIS þeir Andri Árnason, Halldór Jónsson, Lárus L. Blöndal, Páll Ásgrímsson, Sigurbjörn Magnússon, Stefán A. Svensson og Vífill Harðarson.
Viðskiptavinir JURIS eru m.a. fyrirtæki í hinum ýmsu greinum atvinnulífsins, bæði innlend og erlend, sveitarfélög og opinberar stofnanir.
Sem aðili að GLOBALAW, sem er alþjóðlegt samstarfsnet lögmannsstofa, getur stofan boðið viðskiptavinum sínum upp á þjónustu um allan heim.
JURIS rekur jafnframt öfluga og skilvirka innheimtuþjónustu. Stofan hefur mikla reynslu af innheimtu vanskilakrafna og hagar þjónustunni eftir þörfum hvers viðskiptavinar.
Opnunartími stofunnar á mánudögum til fimmtudags er 8:00 - 17:00 en á föstudögum 9:00 - 16:00. Opnunartími að sumri er 8:00 - 16:00.
Minnka